Aðgerðarhópurinn Öfgar harðneitar fyrir að hafa sent bréf til Ásdísar Ingu þar sem henni er tilkynnt að barnsfaðir hennar og sambýlismaður muni vera opinberlega sakaður um ofbeldi á næstu dögum.
Í bréfinu sem hópurinn birtir með leyfi þeirra hjóna segir að tilkynnt verði um ofbeldið í hlaðvörpum á næstu dögum. „Megi þér ganga sem allra best. Aðgerðarhópurinn Öfgar,“ segir í lok bréfsins nema vandamálið er að Öfga-hopurinn kannst ekki við að hafa sent bréfið.
„Við viljum árétta að við höfum aldrei póstsent bréf. Þetta bréf er falsað og einungis sent til þess að þagga niður í þolanda ofbeldis og fólki sem stendur henni nærri. Við fordæmum að samtökin okkar séu notuð sem hræðslutaktík. Við trúum þolanda og stöndum með henni,“ skrifa Öfgar á Twitter og birta mynd af bréfinu.