Öfgar fagna fundi með DV: „Hvetjum aðra fjöl­miðla til að taka svona skref“

Bar­áttu­hópurinn Öfgar greinir frá því að á Twitter að hópurinn hafi átt góðan fund blaða­mönnum á DV þar sem var rætt um bar­áttuna, opin kommenta­kerfi, smellu­fréttir um bar­áttu­fólk og þol­endur.

„Það var gott að ganga inn í rými þar sem vilji er til að gera vel og skoða hvað má gera betur,“ skrifar hópurinn í færslu á twitter. „Hvetjum aðra fjöl­miðla til að taka svona skref.“

Vil­borg Helga­dóttir trúir því varla að DV af öllum miðlum hafi tekið þetta skref.

„Á­huga­vert, og DV af öllum! Hef sjálf haldið að þeirra stefna þrifist svo til ein­göngu á smellu­beitum en gott að heyra að svona um­ræða sé í gangi. Fáum við að heyra meira? Verða tekin ein­hver skref til úr­bóta í þessum klikkaða frum­skógi smellu­frétta og at­huga­semda­kerfa?,“ skrifar Vil­borg undir færslu Öfga.