Oddur segir hingað og ekki lengra: „Viljum við láta koma svona fram við okkur? Svar mitt er nei“

„Viljum við láta koma svona fram við okkur? Svar mitt er nei. Rísum upp gegn þessari kúgun og þessum ríkisbubbum og sýnum þeim hver við erum og hvað við viljum.“

Þetta segir Oddur Thorarensen Stefánsson í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag en Oddur er blindur og lamaður eftir líkamstjón sem hann hlaut í mótorhjólaslysi sem ungbarn.

Í grein sinni bendir hann á að hvorki Tryggingastofnun né sveitarfélög hjálpi fötluðum einstaklingum þegar kemur að aðstoð sem þeir þurfa.

„Til dæmis hjálpa sveitarfélögin ekki fötluðum með umsóknir sínar um notendastýrða persónulega aðstoð og Tryggingastofnun hjálpar ekki til með það að fatlaðir fái sérútbúnar bifreiðar þegar þeir þurfa á því að halda. Svona fálæti og sinnuleysi ætti ekki að vera í boði í okkar landi; bæði sveitarfélögin og Tryggingastofnun koma fram við okkur eins og lokaðar kennitölur. Viljum við láta koma svona fram við okkur? Svar mitt er nei. Rísum upp gegn þessari kúgun og þessum ríkisbubbum og sýnum þeim hver við erum og hvað við viljum.“

Oddur segir að sveitarfélög jafnt sem Tryggingastofnun hafi brotið á fötluðum einstaklingum allt of lengi og „þurfa að svara til saka fyrir brot gegn okkur og þessum málaflokki.“

Bendir hann á að lög séu í landinu sem segja að fatlaðir skuli njóta mannréttinda til jafns við ófatlaða og þetta standi einnig í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

„Fatlaðir einstaklingar eru borgarar í þessu samfélagi jafnt sem ófatlaðir, einnig eru þeir neytendur og eiga rétt á því að vera þátttakendur í samfélaginu. Ríkið og sveitarfélögin koma hins vegar í veg fyrir það. Ráðherra málaflokksins þarf að beita sér gegn þessari kúgun; fatlaðir geta hvorki stundað skóla né vinnu. Þetta er hröð afturför til þess tíma þegar Kópavogshælið var og hét, en því var lokað 1991. Ég set spurningarmerki við þetta.“