Oddur má ekki hjóla í gegnum göngin: Einu rökin virðast vera „af því bara!!“

Oddur Helgi Hall­dórs­son, fyrr­verandi bæjar­full­trúi á Akur­eyri og á­huga­maður um hjól­reiðar og úti­vist, má ekki hjóla í gegnum Vaðla­heiðar­göng – ekki frekar en aðrir sem vilja fara á reið­hjóli í gegnum göngin.

Oddur veltir fyrir sér á­stæðunum fyrir þessu í at­hyglis­verðri grein á vef Viku­blaðsins á Akur­eyri.

„Vaðla­heiðar­göng eru 7500metra löng, veg­breidd er 7metrar. Um­ferðar­hraði er 70km/klst. Vaðla­heiðar­göng eru einum metra víðari en önnur tví­breið göng á Ís­landi. Leyfi­legt er að fara um göngin á opnum farar­tækjum, eins og vél­hjólum og vespum. Ekki má hjóla í gegnum göngin.“

Oddur bendir á að flest göng á Ís­landi séu svipuð að því leyti að há­marks­hraði í þeim er 70 kíló­metrar á klukku­stund og ekki má fara gangandi eða ríðandi í gegnum þau. Segir hann að hjóla megi í gegnum öll göng á Ís­landi, nema Vaðla­heiðar­göng og Hval­fjarðar­göng og veltir hann fyrir sér á­stæðum þess.

„Hver eru rökin fyrir að bannað sé að hjóla gegnum Vaðla­heiðar­göng? Ekki um­ferðar­hraði. Hann er sá sami og í öðrum göngum. Ekki vega­lengd, Norð­fjarðar­göng og Héðins­fjarðar­göng saman­lögð, eru lengri. Ekki veg­breidd. Vaðla­heiðar­göng eru breiðustu göng á Ís­landi fyrir utan þre­falda hluta Hval­fjarðar­ganga. Ekki um­ferðar­magn, því það má hjóla á flestum vegum á Ís­landi óháð um­ferðar­magni. Samt er oftast 90km/klst. há­marks­hraði á þjóð­veginum. Ekki er það vegna þess að þeir eru hræddir við að geta ekki rukkað, því mótor­hjól eru gjald­frjáls og reið­hjól væru það þá væntan­lega líka. Ekki af því þeir eru hræddir við mengun, þá þyrfti auka­súr­efni inn í neyðar­rýmin ef hættu­legt væri að dvelja lengi inn í göngunum. Enda eru göngin hönnuð til að hreinsa sig af CO2. (halla niður að báðum ganga­munnum)“

Oddur segir að lík­leg á­stæða þess að hjól­reiðar séu bannaðar í Hval­fjarðar­göngum vera þá að þar er veg­halli tals­verður og göngin lægst í miðjunni þar sem mengun gæti farið yfir ó­æski­leg mörk. Þá eru brattar brekkur beggja vegna upp úr göngunum en það er ekki fyrir því að fara í Vaðla­heiðar­göngum.

„Mikil vakning er í hjól­reiðum lands­manna. Hér á Akur­eyri er gífur­legur fjöldi fólks sem hjólar sér til á­nægju og heilsu­bótar. Að­staðan hefur stór­batnað undan­farin ár og fer enn batnandi,“ segir Oddur.

Þeir sem vilja fara austur yfir Vaðla­heiði þurfa að fara yfir Víkur­skarð eða gamla veginn yfir Steins­skarð. Það er tölu­vert lengri og tor­færari leið en að fara í gegnum göngin.

„Með til­komu gangana varð sam­gangur beggja vegna Vaðla­heiðar enn meiri en hann var. Margir sækja vinnu yfir heiðina. Mjög margir sumar­bú­staðir og hjól­hýsa­svæði eru í Fnjósk­ár­dal og ég er viss um að ef hjóla mætti gegnum göngin myndu hjól­reiðar aukast mikið austur yfir heiði. Finnst eftir að hafa farið í gegnum þetta að einu rökin fyrir að banna hjól­reiðar gegnum göngin séu: Af því bara!!“