Ó­breyttar sótt­varna­ráð­stafanir til 9. desember hið minnsta

Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra hefur á­kveðið að fram­lengja gildandi reglu­gerðir um tak­markanir á sam­komum og skóla­starfi ó­breyttar til 9. desember næst­komandi.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá Stjórnar­ráðinu.

Þetta er gert í sam­ræmi við til­lögu Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis sem ræður gegn því að slaka á sótt­vörnum núna vegna þess hvernig far­aldurinn hefur þróast síðustu daga.

Þór­ólfur skrifaði minnis­blað til Svan­dísar á sunnu­dag þar sem fram kemur að hann hefði gert ráð fyrir að hægt yrði að ráðast í var­færnar tilskanir á gildandi sótt­vörnum frá og með morgun­deginum.

„Sótt­varna­læknir setti þó fyrir­vara um að hann á­skildi sér rétt til að endur­skoða til­lögur sínar um til­slakanir ef þróun far­aldursins myndi breytast. Fram kemur hjá sótt­varna­lækni að undan­farið hafi orðið breytingar á far­aldrinum. Upp hafi komið hóp­sýkingar og smitum fjölgað. Þá virðist fjöldi þeirra sem greinast utan sótt­kvíar stefna í línu­legan vöxt og hugsan­legan veldis­vöxt segir sótt­varna­læknir. Til­laga hans er sú að engar breytingar verði gerðar á gildandi sótt­varna­ráðs­stöfunum, þ.e. tak­mörkunum á sam­komum og skóla­starfi næstu eina til tvær vikur.“

Í til­kynningunni segir að við endur­skoðun sótt­varna­ráð­stafana sem hefjast þegar í stað, verði meðal annars horft til þess hvort til­efni sé til að gera til­slakanir á lands­byggðinni um­fram höfuð­borgar­svæðið í sam­ræmi við hug­leiðingar sótt­varna­læknis í með­fylgjandi minnis­blaði.

Sem fyrr segir felur á­kvörðun ráð­herra í sér ó­breyttar sótt­varna­ráð­stafanir til og með 9. desember.