Margrét Friðriksdóttir, einn helsti andstæðingur bólusetninga á Íslandi, greinir frá því á Facebook í gær að hún hafi ítrekað reynt að smitast að Covid-19 eftir að dóttir hennar greindist smituð.
„Kæru vinir ég tel nauðsynlegt að tjá mig um það sem hefur gerst á heimilinu þessi jólin, en þannig er mál með vexti að vinkona dóttur minnar kom í heimsókn þann 22. desember og hringdi svo á jóladag og tilkynnti okkur að hún hefði greinst jákvæð með Covid. Dóttir mín var svo farin að finna fyrir einkennum um kvöldið þannig ég fór og keypti hraðpróf fyrir okkur mæðgurnar þrjár,“ skrifar Margrét.
„Við tókum allar test og yngri stelpan mín greinist jákvæð en við neikvæðar, ég tók svo annað test daginn eftir og þá er sú yngri aftur jákvæð en ég og eldri dóttir mín aftur neikvæðar. Við pöntuðum því tíma fyrir stelpuna í PCR próf á Suðurlandsbraut. Ég hafði samband við netspjallið á Covid.is og sagði þeim frá þessu og spurði hvort ég þyrfti að gera einhverjar ráðstafanir hér á heimilinu en var svarað að þar sem við greinumst ekki jákvæðar og ekki með nein einkenni þá þyrftum við ekki að koma í PCR próf,“ bætir hún við.
Hún segir dóttir sína hafa verið með mjög væg einkenni og hausverk í tvo daga en engan hósta og hita. Vægt Verkjalyf dugði til að slá á hausverkinn.
„Ég hef ekki farið leynt með það að ég er ekki bólusett en ég vil endilega fá mótefnið sem er samkvæmt vísindunum langbest og miklu betra en bólusetning. Ég reyndi því að smitast af dóttur minni með því að drekka úr glasinu hennar og við vorum ekkert að passa okkur hér á heimilinu, spiluðum hér við borðstofuborðið og lét hana anda ofan í mig. Ekkert gekk og mér hefur ekki tekist að smitast en þá en er búin að taka þrjú hraðpróf og er einkennalaus.“
Margrét segir þetta ekki koma sér á óvart að hún smitaðist ekki þar sem hún hefur aldrei fengið flensu líkt og faðir seinn sem fékk aldrei flensu á sínum 62 árum sem hann lifði.
Í ljósi þess finnst henni mikilvægt að það séu gerðar rannsóknir á því hvers vegna sumir séu algerlega ónæmir fyrir veirunni.
Hún segir stelpuna sína vera orðin hress eftir þessa „hræðilegu“ covid veikindi sem hefur sett samfélagið á hliðina. Hún óskar jafnframt landsmönnum gleðilegs nýs árs.
„Lifið heil og Guð blessi ykkur,“ skrifar Margrét að lokum en hægt er að lesa færsluna í heild sinni hér.