„Þetta er ekki í takti við launaþróun í landinu. Garðabær er 18 þúsund manna samfélag,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Garðabæjar, í Fréttablaðinu í dag.
Blaðið greinir frá því í dag að samið hafi verið um laun Almars Guðmundssonar, nýs bæjarstjóra Garðabæjar í gær, og mun hann fá 2,5 milljónir króna. Minnihlutinn í bæjarstjórn telur að þetta sé allt of hátt en bent er á það að laun fyrrverandi bæjarstjóra, Gunnars Einarssonar, hafi farið yfir þrjár milljónir króna undir lok síðasta kjörtímabils.
Sara segist ekki sjá hvernig rekstur Garðabæjar er öðruvísi en rekstur annarra sveitarfélaga hvað varðar ábyrgð bæjarstjóra sem réttlætir þessi laun.
Almar, sem var oddviti Sjálfstæðisflokksins, tekur við af Gunnari Einarssyni sem gegnt hafði starfinu frá 2005. Laun hans í maí voru 3.045.542 krónur og auk þess hafði hann bíl til umráða.
Samkvæmt ráðningarsamningi Almars verða grunnlaun tæpar 2,2 milljónir króna. Tæpar 200 þúsund krónur fær hann fyrir bæjarstjórnarsetu og í stað bíls fær hann 105 þúsund krónur í bílastyrk. Í grunninn eru þetta því 2,5 milljónir króna, eða um 135 krónur á hvern íbúa.