Nýtt til­rauna­verk­efni: Hundar leyfðir í Kringlunni

Kringlan hefur á­kveðið að setja á fót nýtt til­rauna­verk­efni en í því felst að smá­hundar fái að koma með eig­endum í Kringluna á af­mörkuðum tímum.

Í til­kynningu frá Kringlunni um málið kemur fram að búið sé að fá leyfi frá um­hverfis­ráðu­neytinu og heil­brigðis­eftir­liti fyrir verk­efninu en það hefst á morgun, 14. júní.

„Hunda­ræktar­fé­lagið hefur tekið hug­myndinni fagnandi og finnst með þessu stigið risa­stórt skref í eflingu hunda­menningar á Ís­landi,“ segir í til­kynningu Kringlunnar um málið og full­yrðir Kringlan að búast megi við nota­legri og öðru­vísi stemningu á sunnu­dögum.

Þrátt fyrir að til­mælin nái að­eins til smá­hunda eru stærri hundar ekki beint bannaðir en skil­yrði fyrir komu hvuttana eru sú að hægt sé að halda á þeim í rúllu­stiga eða kippa þeim í fangið.

Þar sem hundar eru ekki leyfðir í mat­vöru­verslanir og inn á snyrti- og lækna­stofur þá eru við­skipta­vinir beðnir um að virða það. Þá er óskað eftir því að fólk kynni sér reglur náið en þær má nálgast á heima­síðu Kringlunnar.