Eldgosið í Geldingadölum á Reykjanesi er enn í fullum gangi og í gær var fátt sem benti til þess að það væri í rénun. Meðfylgjandi myndband birtist á Facebook-síðu Eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands í gærkvöldi og er óhætt að segja að það sé fallegt.
Myndbandið tók Jóna Sigurlína Pálmadóttir en flogið var yfir svæðið í gær með dróna til að kanna aðstæður.
„Gígurinn er barmafullur af kviku og byrjað að flæða yfir barmanna niður í átt að Geldingadölum sem og í átt að Syðri Merardal (áður þekktur sem Nafnlausi Dalur). Aðal rásinn liggur hinsvegar enn niður í Meradali Nyrðri,“ segir í færslu hópsins.
Myndbandið má sjá hér að neðan: