Nýtt Römpum upp verk­efni kynnt í Hvera­gerði: „Hlut­verk okkar í stjórn­málum er ein­mitt að út­rýma þessum þröskuldum“

Katrín Jakobs­dóttir, for­sætis­ráð­herra, skrifar um Römpum upp Ís­land verk­efnið sem var kynnt í dag .

„Það eru margir þröskuldar í sam­fé­laginu, á­þreifan­legir jafnt sem ó­á­þreifan­legir. Hlut­verk okkar í stjórn­málum er ein­mitt að út­rýma þessum þröskuldum, gera ekki ráð fyrir að við séum öll eins og ein stærð henti öllum. Þannig fáum við fjöl­breyttara, betra og ríkara sam­fé­lag fyrir okkur öll,“ skrifar Katrín.

„Í fyrra stóðum við að verk­efninu Römpum upp Reykja­vík sem Haraldur Þor­leifs­son bar­áttu­maður hafði for­göngu um. Verk­efnið gekk vonum framar og 100 rampar risu á innan við ári og stór­bættu þannig að­gengi fólks að þjónustu í Reykja­vík,“ bætir hún,

„Nú ráðumst við í stærra verk­efni og tökum þátt í Römpum upp Ís­land þar sem markið er sett á 1000 rampa víðs vegar um landið á næstu fjórum árum. Aftur er það frum­kvæði Haraldar sem drífur þetta verk­efni á­fram í sam­vinnu við ríki, sveitar­fé­lög, einka­fyrir­tæki og fleiri aðila. Það var sannur heiður að taka þátt í að kynna þetta verk­efni nú í há­deginu í Hvera­gerði!“ skrifar Katrín að lokum.