Eldgosið í Geldingadölum tók breytingum um helgina þegar kvikustrókavirkni tók að detta niður í nokkrar mínútur áður en hún eykst svo með miklum látum og hærri strókum.
Meðfylgjandi myndband úr vefmyndavél RÚV, sem birtist á Twitter í dag, sýnir glöggt hversu mikill krafturinn er nú í gosinu. Búið er að hægja á myndbandinu og er engum ofsögum sagt að sjónin sé býsna tilkomumikil þegar strókarnir teygja sig nánast upp til himins.
Hærra minn Guð til þín 😇 pic.twitter.com/9IUhbabYhx
— 🐱🚀 Birkir (@birkirh) May 5, 2021