Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, er gestur hjá Jóni G. í kvöld. Þeir ræða meðal annars um Kringlureitinn og áhrif falls WOW á útleigu skrifstofuhúsnæðis. Um áform Reita að byggja 170 þús. fermetra á Kringlureitnum, segir Guðjón að það sé eins og að byggja nýtt hverfi á stærð við Siglufjörð í miðri Reykjavík.
„Við fórum svolítið bratt af stað með þetta verkefni og héldum að það gengi hraðar fyrir sig. En það er eins og gott rauðvín; það verður bara betra eftir því sem árin líða. Það er flókið. Hugmyndin er að byggja upp um 170 þús. fermetra af nýbyggingum. Eignasafn okkar telur núna 465 þús. fermetra þannig að þetta er mikil viðbót. Langstærsti hlutinn verður íbúðarhúsnæði. Margir hagsmunaaðilar koma við sögu. Það eru til dæmis hugmyndir um að setja Miklubraut í stokk og höfum við látið forhanna stokkinn. Þetta gengur út á að byggja nýtt hverfi á stærð við Siglufjörð eða Ísafjörð inni í miðri Reykjavík,“ segir Guðjón.