Nýtt hóp­smit skýrir fjölgun smita

Eins og greint var frá í morgun greindust 26 kórónu­veiru­smit á landinu. Rögn­valdur Ólafs­son að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn greindi frá því á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna nú á tólfta tímanum að fjölgun smita mætti rekja til hóp­smits sem komið er upp.

Rögn­valdur sagði að málið væri í skoðun og hóp­smit væru eitt­hvað sem alltaf gætu komið upp í því á­standi sem nú ríkir. At­hygli vakti að Rögn­valdur sagðist ekki hafa frekari upp­lýsingar um sýkinguna eða hvar á landinu hún kom upp.

Ekki hafa greinst fleiri smit á landinu síðan 3. nóvember síðast­liðinn þegar 28 smit greindust.

Ní­tján þeirra sem greindust með veiruna í gær voru í sótt­kví en sjö voru ekki í sótt­kví.