Nýtt afbrigði fannst í Suður-Afríku og það er þegar farið að valda usla

Nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 hefur fundist í Suður-Afríku og er það þegar farið að valda vísindamönnum hugarangri. Stafa áhyggjurnar af því að afbrigðið sé jafnvel meira smitandi en Delta-afbrigðið og þá sé það ónæmara fyrir þeim bóluefnum sem eru komin á markað.

Fjallað er um þetta í vefútgáfu Jerusalem Post.

Afbrigðið sem um ræðir kallast C.1.2 og fannst það fyrst í Suður-Afríku. Í fréttinni kemur fram að það hafi einnig fundist í öðrum ríkjum, til dæmis Englandi, Kína, Dóminíska lýðveldinu, Máritíus, Nýja-Sjálandi, Portúgal og Sviss.

Rannsóknir fara nú fram sem miða að því að kanna hvort það sé meira smitandi en önnur afbrigði og hversu mikla virkni bóluefni hafa gegn því.

Þetta tiltekna afbrigði fannst fyrst í maí síðastliðnum, en í frétt Jerusalem Post segir að það sé töluvert frábrugðið veirunni eins og hún var fyrst. Stökkbreyting veirunnar sé því umtalsverð á því rúma eina og hálfa ári sem liðið er síðan Covid-19 varð fyrst vart.

Svo virðist sem þetta tiltekna afbrigði hafi sótt í sig veðrið undanfarnar vikur og verði meira áberandi með hverri viku sem líður. Í maí greindist þetta afbrigði í 0,2% allra greindra smita í Suður-Afríku, 1,6% í júní og 2% í júlí. Sem fyrr segir fara rannsóknir nú fram á C.1.2 en vísindamenn telja að stökkbreytingar í veirunni geri henni alla jafna auðveldara um vik að dreifa sér og forðast mótefni.