Nýr vara­for­seti kirkju­þings segir lög um trú­fé­lög vera bastarð: „Búið að banna öllum börnum á Ís­landi að hafa að­gang að Jesú Kristi“

„Mér hefur fundist erfitt að horfa upp á það sem mér finnst vera stjórn­laust undan­hald þjóð­kirkjunnar í ís­lensku sam­fé­lagi,“ sagði Krist­rún Heimis­dóttir lög­fræðingur í fram­boðs­ræðu áður en hún var kjörin fyrsti vara­for­seti kirkju­þings þjóð­kirkjunnar um liðna helgi.

Frétta­blaðið greinir frá þessu í morgun.

Krist­rún sem kvaðst á kirkju­þinginu hafa hlotið kristi­legt upp­eldi boðaði sókn þjóð­kirkjunnar. „Á síðustu misserum og árum hefur það lagst sí­fellt meira á minn hug að þjóð­kirkjan á Ís­landi sé lykil­­at­riði í því sam­fé­lagi sem ég ólst upp í og sem ég vil að af­kom­endur mínir og Ís­lendingar fram­tíðarinnar geti notið,“ sagði hún. Þess vegna vildi hún berjast gegn áður­nefndu undan­haldi kirkjunnar.

„Ég tel að kirkjan eigi mikið af sóknar­færum og að við verðum að þora að taka um­ræðuna,“ sagði Krist­rún. „Ég er reiðu­búin að taka slagi fyrir kirkjuna og mér er alveg sama þótt mér verði út­húðað á sam­fé­lags­miðlum á meðan ég geri það.“

Krist­rún kvaðst í starfi sínu innan Stjórnar­ráðsins hafa fylgst með laga­setningu um trú­fé­lög. „Lögin um trú­fé­lög eru að mínu mat bastarður og Zúista­hneykslið segir allt sem segja þarf um það hversu slæm þau lög eru,“ sagði hún og bætti við að alltaf þegar hún gæfi fermingar­börnum gjafir léti hún fylgja þau orð að besti á­hrifa­valdurinn sé Jesús Kristur. „Og hvers vegna er búið að banna öllum börnum á Ís­landi að hafa að­gang að þeim á­hrifa­valdi? En öll mega þau horfa á TikTok?“

Krist­rún fékk á­tján at­kvæði en mót­fram­bjóðandi hennar, Stein­dór Haralds­son fram­kvæmda­stjóri, tíu.

„Við erum að fóta okkur í nýju um­hverfi. Þannig að það er ekki alveg rétt að það hafi ekkert verið gert hérna,“ sagði Stein­dór í sinni ræðu. Mark­mið kirkjunnar væri að boða fagnaðar­erindi Jesú Krists. „Þjóð­kirkjan er eins og olíu­skip sem ekki verður beygt á nóinu.“