Nýr Royal-búðingur: Gætir þú hugsað þér að smakka þennan?

Ný tegund af Royal búðingi mun birtast í verslunum á næstu dögum en um er að ræða tegund sem að­eins verður fram­leidd í tak­mörkuðu magni.

Roa­yl-búðingurinn á sér fjöl­marga fylgj­endur hér á landi en bragð nýju tegundarinnar er bananasplitt með hvítu súkku­laði.

„Royal búðingur hefur á síðustu árum orðið sí­fellt vin­sælli í bakstur og sem fylling og var nýja tegundin þróuð með það í huga auk þess að vera ljúffengur eftir­réttur fyrir alla fjöl­skylduna. Nýja tegundin kemur ein­mitt í tæka tíð fyrir bollu­daginn og mælum við með að blanda 4 dl af köldum rjóma við inni­hald pakkans til að gera dá­sam­lega bananasplitt­fyllingu í bollurnar. Ís­lendingar hafa sýnt og sannað að þeir eru mjög hug­mynda­ríkir þegar kemur að Royal búðingi og hafa margir búið til sína eigin full­komnu blöndu,“ segir í til­kynningu.

Royal búðingur hefur verið fram­leiddur á Ís­landi í 67 ár og á sér djúpar rætur í ís­lenskri matar­hefð. Fram­leiðandi hefur alla tíð verið Agnar Ludvigs­son ehf.