„Ég held að flest íslensk fyrirtæki, hvort sem þau gera sér grein fyrir því eða ekki, eru að stunda mikla nýsköpun,“ segir Árni Sigurjónsson, nýkjörinn formaður Samtaka Iðnaðarins í samtali við Sigmund Erni í fréttaþættinum 21 í kvöld. Þar ræða þeir meðal annars um nýsköpun á Íslandi og þau áhrif sem kórónaveirufaraldurinn kann að hafa á iðnað.
„Nýsköpun og Ísland fara eitthvað ótrúlega vel saman. Það er eitthvað í lund okkar og geði sem gerir það að verkum að við erum með þolgæði og þrautseigju. Svona „Þetta reddast“ hugsunarháttur.“ Hann segir að starfsumhverfið sé að breytast, hvatar séu að aukast sem allt hjálpi til skamms og lengri tíma.
Breytingar í loftinu
Það er misjafnt eftir geirum hvernig fólk horfir á ástandið í dag. „Þetta er auðvitað allt ein keðja, atvinnulífið. Félagsmenn okkar fundu margir hverjir fyrir þessu strax, þetta er að síast inn hjá öðrum. Við Íslendingar erum full af baráttuþrótti, við höfum séð kreppur, en ástandið er svart. Því skal ekki neitað.“
Þrátt fyrir þetta á Ísland góða fagmenn í öllum geirum. „Við búum í matarkistu og gott land sem er hentugt til matvælaframleiðslu. Við þurfum að auka sjálfbærni og stunda betri nýtingu á umhverfisþáttum.“
Hann segir faraldursástandið hljóta að geta af sér breytingar. „Ég vona að þetta kenni okkur eitthvað. Auðvitað fer það aðeins eftir því hversu fljótt við vindum ofan af þessu. Eina vissan er óvissan á þessum tímapunkti. En það hlýtur eitthvað að breytast og það hlýtur að hafa í för með sér einhverja þjóðfélagslega breytingu. Ekki bara fyrir Íslendinga heldur fyrir heiminn allan.“
Breytingarnar eru þá helst í átt tæknivæðingar. „Það er ekkert útilokað að þetta hafi varanleg áhrif. Það sést að íslensk fyrirtæki og fyrirtæki um allan heim eru að grípa til aukinna tækni. Skólar hafa verið að tölvuvæðast enn frekar.“
Aðgerðir ríkisstjórnar góðar fyrir fyrirtæki
Árni telur þá hvata sem ríkisstjórnin hefur kynnt í aðgerðapökkum sínum góða fyrir fyrirtæki, þá sérstaklega varðandi endurgreiðslur úr rannsóknar og þróunarsjóði. „Þetta mun hjálpa fjöl mörgum fyrirtækjum að gera aðeins meira, leggja aðeins meira í. Þarna er kominn jákvæður hvati.“
Ísland er að horfast í augun við baráttu sem vel er hægt að vinna. „Þetta getur verið áratugur nýsköpunar á Íslandi, ef við höldum rétt á spilunum.“