Ágúst Héðinsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri útvarpssviðs Árvakurs sem rekur stöðvarnar K100 og Retro FM895. Þetta kemur fram í frétt mbl.is
Ágúst tekur við af Sigurði Gunnarssyni eða Sigga Gunnars sem hverfur til annarra starfa eins og Hringbraut greindi frá.. Ágúst hefur undanfarið stýrt markaðs- og kynningarmálum fyrirtækisins.
„Um leið og við óskum Sigurði velfarnaðar á nýjum vettvangi og þökkum gott samstarf þá er ánægjulegt að geta nýtt sér þekkingu reynslumesta aðila landsins í rekstri og stýringu útvarps til að móta áfram ferskustu stöðvar landsins,“ segir Magnús E. Kristjánsson útvarpsstjóri Árvakurs.
Ágúst er viðskiptafræðingur og á að baki langa sögu í fjölmiðlum, sér í lagi útvarpi, og gerði um tíma Bylgjuna að langvinsælustu stöð landsins. Hann var lengi vel forstöðumaður og framkvæmdastjóri miðla hjá 365 og Sýn.