Nýju sjúkra­bílarnir verða gulir á litinn

25 nýir sjúkra­bílar verða teknir í notkun hér á landi í sumar. Rauði krosinn birtir myndir af nýju bílunum en Rauði krosiinn á og rekur sjúkra­bíla­flota landsins og hefur gert í um 90 ár.

Í Face­book-færslu Rauða krossins kemur fram að nú sé verið að gera bílana klára en eins og sjá má eru þeir í fagur­gulum lit. Í færslunni kemur fram að um sé að ræða svo­kallaða Batten­burg-merkingu sem ætlar er að auka sýni­leika bílanna enn frekar.

Fleiri myndir má sjá í færslunni hér að neðan.

Síðar í sumar koma 25 nýir sjúkrabílar á götur landsins, en eins og kunnugt er á og rekur Rauði krossinn sjúkrabílaflota...

Posted by Rauði krossinn on Miðvikudagur, 10. júní 2020