Söngvarinn og þúsundþjalasmiðurinn Herbert Guðmundsson, tilkynnti um nýtt lag á Facebook ekki alls fyrir löngu. Lagið heitir Með Stjörnum og tilkynnti Herbert það með mynd.
Á myndinni sitja þeir Herbert, Björgvin Halldórsson og Kristján Jóhannsson. Um samstarfsmenn Herberts þarf fátt að segja. Þeir eru tveir af skærustu stjörnum landsins þegar kemur að söng.
Ummælin við myndina eru heldur ekki af verri endanum. Auglýsingakóngurinn Örn Geirsson segir einfaldlega „Wó flottir strákar. Love and peace.“ Björgvin Franz Gíslason ritar; „Þetta er rándýr mynd.“ Rithöfundurinn Sigurbjörn Þorkelsson, faðir Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar íþróttafréttamanns á RÚV segir; „Vá, þetta verður eitthvað.“
Stórleikarinn Jóhann Sigurðarson bendir á verðið á fermetrunum og segir með rós í endann; „Þessi fermetri er rándýr,“ áður en lagahöfundurinn og leikarinn Valgeir Skagfjörð ritar niður eitt orð sem segir svo margt. „Lávarðadeildin.“