Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir Friðfinns, upplýsir í samtali við DV að honum hafi borist upplýsingar um að Friðfinnur hafi verið í sambandi við fólk á laugardaginn. Þetta hefur vinkona Friðfinns upplýst.
Um er að ræða áhugaverðar, óþægilegar og óstaðfestar vísbendingar í málinu.
Segir vinkonan að Friðfinnur hafi þá verið í talsambandi við par í undirheimum. Karlmaðurinn er sagður vera mjög hættulegur.
DV barst ábending um það í gær að menn í undirheimum hefðu ógnað Friðfinni undanfarið vegna skulda. Eins og áður hefur komið fram hefur Friðfinnur átt í fíknivanda en var kominn á beinu brautina og hafði vegnað vel í langan tíma. Hann mun hins vegar hafa fallið ekki löngu áður en hann hvarf.
Aðspurður hvort Kristinn kannist við að Friðfinni hafi verið ógnað segir hann ekki hafa neitt staðfest um það en hann hafi grunsemdir um það. „Mig hefur grunað þetta en ég á eftir að heyra betur í kærustunni hans. Þetta eru bara grunsemdir, ekkert staðfest.“
Kristinn segir vísbendingar í málinu vera mjög misvísandi. „Þetta er þvers og kruss. Mér finnst svo skrýtið að hundarnir fóru niður að sjó, þannig að það stangast allt á. Lögreglan fann þarna skó á leiðinni niður að sjó og þess vegna var talið að hann hefði farið í sjóinn. En svo kemur í ljós að þetta eru alls ekki skórnir hans.“
DV ræddi við Guðmund Pál Jónsson lögreglufulltrúa sem segir aðspurður að málið sé enn ekki komið inn á borð Miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar. Hann kannast ekki við upplýsingar um að Friðfinni hafi verið ógnað í aðdraganda hvarfsins en útilokar ekki slíkt. Öllum möguleikum sé velt upp og allar vísbendingar skoðaðar.
Hægt er að lesa umfjöllun DVhér.