Séra Sigurður Jónsson, settur prestur í Digraneskirkju, hefur látið af störfum að eigin beiðni. Vegna þess verður ekkert helgihald í kirkjunni fyrr en fyrsta sunnudag í aðventu þann 27. nóvember næstkomandi. Fréttablaðið greinir frá þessu.
„Tekin var ákvörðun um að nýta tímann fram undan til að vinna með söfnuðinum, sem hefur gengið í gegnum afar erfiða tíma á árinu, að framtíðarmálum sóknarinnar er snúa m.a. að prestsþjónustu og safnaðaruppbyggingu,“ segir Pétur G. Markan biskupsritari um fund sóknarnefndar kirkjunnar, og staðfestir að á honum hafi Sigurður sagt sig frá kirkjunni.
Fréttablaðið bendir á að nú séu einungis þrír starfsmenn skráðir innnan kirkjunnar. Það eru oganistinn, matráður og svo séra Gunnar Sigurjónsson,
sem er enn sagður vera í leyfi þrátt fyrir að það sé löngu ljóst að hann muni ekki snúa aftur til starfa.
Sá var settur í leyfi eftir ásakanir sex kvenna um kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.