Samkaup mun draga lærdóm af hinni mjög svo umdeildu uppsögn Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld. Fréttablaðið greinir frá málinu.
Haft er eftir Gunnu Líf Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Mannauðs-og samskiptasviðs Samkaupa að standa hefði mátt betur að uppsögninni.
Rebecca var miður sín eftir að hafa verið sagt upp störfum. Formleg ástæða uppsagnarinnar var skipulagsbreyting en yfirmaður hennar missti það út úr sér að hún hefði talað of mikið.
„Þarna er um að ræða almennar skipulagsbreytingar. Það er alltaf erfitt að segja fólki upp og það hefði sannarlega mátt standa betur að uppsögninni í þessu tilviki af okkar hálfu,“ segir Gunnur hjá Samkaupum.
Frétt Fréttablaðsins í heild sinni.