Nýjar vendingar í Saltdreifaramálinu: Sigurður G. segir lögreglu hafa búið til sönnunargögn

Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson krefst þess að gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Guðlaugi Agnari Guðmundssyni til 23 .mars 2023 vegna saltdreifaramálsins verði felldur úr gildi. Fréttablaðið greinir frá þessu, en miðilinn hefur greinagerð í málinu undir höndum.

Guðlaugur fékk tíu ára fangelsisdóm fyrir sinn hlut í málinu þann fyrr í þessum mánuðu og situr nú í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði. Verjandi hans vill að hann muni frekar sæta farbanni.

Í greinagerðinni er því haldið fram að Guðlaugur hafi í raun verið sakfelldur vegna sönnunargagna sem lögregla bjó til.

„Lögreglan byggði þann tilbúning á gögnum fengnum erlendis frá,“ segir í greinargerðinni. Þá segir í Fréttablaðinu að umrædd erlend frumgögn hafi ekki verið lögð fyrir dómara heldur hafi misgóðar skýrslur lögreglu verið látnar duga.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.