Nýjar vendingar í Ólafsfjarðarmálinu: Trúa ekki frásögn mannsins sem er í haldi lögreglu

Gögn sem Landsréttur hefur birt varpa ljósi á manndrápsmáli í Ólafsfirði. Gögn úr rannsókn lögreglu benda til þess að sakborningurinn, sem nú er í haldi, hafi átt í átökum við hinn látna.

Svo virðist sem sakborningurinn hafi játað það að einhverju leit, en hann vill þó meina að um slys hafi verið að ræða.

Á móti kemur virðist lögregla ekki trúa þessari frásögn mannsins. Samkvæmt bráðabirgðaskýrslu um réttarkrufningu sé útlit fyrir að „skarpan kraft“ hafi þurft í stunguna sem ollu áverkunum á hinum látna.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðins.