Nýjar vendingar í máli Sölva: Tvær konur kæra hann til lögreglu

Tvær konur hafa kært fjölmiðlamanninn Sölva Tryggvason til lögreglu vegna meints ofbeldis. Önnur konan segir að atvikið hafi átt sér stað á heimili hennar þann 14. mars síðastliðin en hin konan þann 22. júní árið 2020.

Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins sem vísar í yfirlýsingu sem lögmaðurinn Kristrún Elsa Harðardóttir sendi að beiðni kvennanna.

„Önnur konan hefur kært Sölva fyrir líkamsárás. Hún kveður atvikið hafa átt sér stað á heimili hennar hinn 14. mars síðastliðinn. Lögregla kom á vettvang. Farið var með Sölva á lögreglustöð og skýrsla tekin af honum þar. Síðar um kvöldið var tekin skýrsla af umbjóðanda mínum á heimili hennar,“ segir í yfirlýsingu Kristrúnar.

Hin konan leitaði til Kristrúnar í dag eftir að hafa fylgst með fjölmiðlaumfjöllun um málið.

„Hún kveðst hafa orðið fyrir kynferðisbroti af hálfu Sölva á heimili hans hinn 22. júní 2020 og kveðst loks nú hafa hugrekki til að kæra brotið til lögreglu. Beiðni um skýrslutöku til að leggja fram kæru hefur þegar verið send lögreglu,“ segir í yfirlýsingunni.

Sögusagnir um meint ofbeldi Sölva fóru á flug á samfélagsmiðlum um síðustu helgi en Sölvi sagði í hlaðvarpsþætti sínum í gær að hann hafi sjálfur leitað til lögreglu fyrir sex eða sjö vikum.

„Ég man ekki hvort það sé fyrir er sex eða sjö vikum síðan, þá leitaði ég til lögreglu af því að það var manneskja sem hótaði að rústa mannorðinu mínu.“

Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.