Nýi mið­bærinn á Sel­fossi að opna

Í dag opna veitinga­staðir og verslanir í nýja mið­bænum á Sel­fossi. Um reynslu­opnun er að ræða. Þetta kemur fram í til­kynningu.

Starf­semi í fyrri á­fanga nýja mið­bæjarins á Sel­fossi er að fara í gang núna um helgina og verslanir og veitinga­staðir að opna fyrir gestum og gangandi.

Um reynslu­opnun, eða „soft opening“ er að ræða. Fram­kvæmdir við fyrri á­fanga mið­bæjarins eru langt komnar og þó ekki séu öll húsin þrettán full­byggð og ýmis hand­tök eftir í um­hverfis­frá­gangi var það vilji allra að­stand­enda að fá álit bæjar­búa og annarra, og slípa reksturinn til í sam­starfi við gesti næstu daga og vikur.

Þær verslanir sem opna núna í hinu nýja Brúar­stræti á Sel­fossi eru Penninn/Ey­munds­son, Tiger, 1905 Blóma­búð, Lista­sel Gallerí og jóla­búðin Mistil­teinn. Stærsta verslunin við götuna, tísku og hönnunar­verslunin Moti­vo opnar innan tíðar líkt og ís­búð Kjörís, Mið­bæjarís og fleiri verslanir.

Í matar­menningar­setrinu í hinu glæsi­lega endur­reista húsi Mjólkur­bús Flóa­manna eru átta veitinga­staðir að hita upp í grillum, ofnum og pottum og pönnum. Þeir eru, Samules­son Mat­bar, Flat­ey Pizza, Smiðjan Brugg­hús, Menam, Roma­no Pasta Street Food, El Gor­dito Taco, Dragon Dim Sum og síðan Ísey skyr bar sem rekin er sam­hliða Skyrlandi, metnaðar­fullri upp­lifunar­sýningu um ís­lenska skyrið.