Ný tíðindi í máli Gylfa Þórs Sigurðssonar

Knatt­spyrnu­maðurinn Gylfi Þór Sigurðs­son verður á­fram laus gegn tryggingu til 17. apríl 2022. Þetta kemur fram í svörum lög­reglunnar í Manchester við fyrispurn Frétta­blaðsins.

Fyrir­komu­lagið hafði áður verið fram­lengt í þrí­gang og rann út í gær en engar fréttir bárust frá lög­reglunni um hvort Gylfi yrði á­kærður eða ekki en hann er grunaður um kyn­ferðis­brot gegn barni.

Gylfi var hand­tekinn á heimili sínu í Bret­landi 16. júlí síðast­liðinn. Lögreglan haldlagði muni heima hjá honum eins og tölvu og síma.

Eins og Frétta­blaðið hefur greint hefur Gylfi verið bú­settur í London síðustu mánuði. Gylfi hefur ekkert spilað með E­ver­ton á nú­verandi tíma­bili vegna málsins og er ó­lík­legt að hann spili aftur fyrir fé­lagið.