Vart þarf að kynna Royal búðing fyrir landsmönnum en nú er komin ný bragðtegund. Árið 2020 var kynnt til sögunnar saltkaramellubragð, var það fyrsta nýja tegundin frá sjötta áratugnum.
Í dag kynnti Melabúðin svo nýja tegund, búðingur með Eitt sett bragði. Er það blanda af lakkrís og súkkulaði.
Royal búðingur eru í eigu John Lindsay hf en hefur verið framleiddur í verksmiðju Agnars Ludvigssonar í 66 ár, frá árinu 1954. Litla verksmiðjan á Nýlendugötu var stofnuð af Agnari Ludvigssyni árið 1941 sem heildsölu- og innflutningsfyrirtæki en framleiðsla á lyftidufti og Royal búðinga hófst árið 1954.