Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 22,8% fylgi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn er sá eini sem fengi yfir 15% atkvæða ef kosið yrði í dag en þar á eftir koma Samfylkingin (14,7%), Píratar (13,7%), Vinstri græn (12,6%) og Viðreisn (10,6%).
Helsta breytingin á fylgi flokka frá síðustu mælingu er sú að Vinstri græn bæta við sig fylgi eftir að hafa dalað nokkuð í síðustu mælingu. Eins og að framan greinir segjast tæplega 13% myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.
Þá eru litlar breytingar á fylgi annarra flokka frá síðustu mælingu, eða á bilinu 0,1-0,8 prósentustig.
Rétt tæplega 10% segjast myndu kjósa Miðflokkinn, tæp 8% Framsóknarflokkinn, nálega 4% Sósíalistaflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins. Tæplega 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Slétt 56% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 4. til 31. ágúst 2020. Heildarúrtaksstærð var 9.479 og var þátttökuhlutfall 51,9%.