Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er með tæplega 91 prósents fylgi fyrir komandi forsetakosningar samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar EMC Rannsókna. Guðmundur Franklín Jónsson, mótframbjóðandi Guðna, mælist með rúmlega 9 prósenta fylgi.
Rannsóknin var framkvæmd dagana 3. til 8. júní og voru svarendur 825 talsins. Endurspegla þeir þýði Íslendinga með tilliti til kyns, aldurs og búsetu, að því er segir í tilkynningu frá EMC Rannsóknum.
Í tilkynningunni kemur fram að þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir bakgrunnshópum komi í ljós að Guðmundur Franklín er með mest fylgi meðal karla og þeirra sem eldri eru. Þó er bent á að Guðni sé með yfirburðarfylgi í öllum lýðfræðihópum.
Þá virðist Guðmundur Franklín sækja fylgi sitt til íslenskra stuðningsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Í könnuninni var einnig spurt hvern svarendur myndu kjósa ef þeir gætu kosið í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Tæplega 53% stuðningsmanna Donald Trump sögðust ætla að kjósa Guðmund Franklín í komandi forsetakosningum hér á landi en tæplega 6% Guðna.