Sölvi Tryggvasvon hefur snúið aftur með hlaðvarpsþættina sína eftir meira en árs fjarveru og er Númi Katrínarson er nýjasti gestur Sölva.
Sölvi lokaði fyrir allt hlaðvarpsefni sitt á öllum miðlum í maí í fyrra en nú er von á sex nýjum þáttum og hefur verið opnað fyrir efnið að nýju.
Nýjasti viðmælandinn, Númi, sem er þrautreyndur íþróttamaður og eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Grandi 101, þurfti að endurskoða líf sitt fyrir nokkrum árið eftir að hafa hrunið andlega og líkamlega:
,,Ég lenti á botninum. Hvort sem við köllum það burnout eða eitthvað annað, þá var hraðinn á mér búinn að vera allt of mikill. Ég var búinn að æfa tvisvar á dag nánast allt mitt líf og svo var ég að læra, eignast börn og að reka fyrirtæki. Þetta var bara of mikið og ég náði engum tíma fyrir mig og var eiginlega bara hættur að geta andað. En það er kannski ekki nema von að maður fari í þessa átt miðað við skilyrðingarnar. Manni hefur bara verið kennt að vera karlmaður, slá í borðið og drekka meira kaffi og halda áfram og ég var alltaf bara þannig. En ég neyddist til að endurskoða mjög margt í mínu lífi eftir þetta tímabil og þurfti að hægja allverulega á mér,” segir Númi, sem segist sjá það vel í störfum sínum hve stór hluti Íslendinga sé fastur í streituástandi:
,,Við gefum okkur fæst almennilegan tíma og rými til að hægja á okkur og spyrja okkur hvort við séum að gera það sem við viljum gera í lífinu og hvort við séum að fara í rétta átt. Það er svo mikilvægt að jarðtengja sig mjög reglulega, ná að hlusta á innsæið og gefa sér rými. Svörin eru öll innra með okkur og líkaminn er ,,healing machine” ef við hlustum almennilega á hvað hann er að reyna að segja okkur. En í nútímanum er áreitið á okkur svo mikið og svo setjum við líkamann úr jafnvægi með alls konar áráttukenndri hegðun varðandi mat og annað. Þá endar það bara með því að við erum einfaldlega hætt að leyfa líkamanum að vinna sína vinnu í friði,” segir Númi, sem bætir við að við endum síðan yfirleitt ekki á að taka heilsuna alvarlega fyrr en hún gefur sig:
,,Svo endum við flest á að átta okkur á því að við þurfum að koma okkur út í náttúruna, borða náttúrulegan mat og hægja á okkur. En því miður gerist það oft ekki fyrr en allt of seint.”
Númi hefur sterkar skoðanir á því hvernig við sem samfélag ölum upp börnin okkar. Hann vill meina að hluti af því sem við sem samfélag þurfum að skoða og taka til gagngerrar endurskoðunar sé hvernig menntakerfið sé uppbyggt:
,,Mér fannst æðislegt að vera barn á Stokkseyri og að fara í sveitina, en ég veit ekki hvað sumt af því sem ég gerði yrði kallað í dag. Mér fannst geggjað að vera til og fá að fara í sveit, keyra traktor 9-10 ára gamall og vera innan um annað fullorðið fólk en bara mömmu og pabba. Ég er ekki að segja að allt hafi verið frábært, en við erum búin að setja börn í of mikinn bómul að mínu mati. Það hefði auðvitað margt mátt vera betra í mínu uppeldi, en ég fékk að gera svo margt og taka ábyrgð snemma. Ég er ekki að dæma einn né neinn, en börn í dag mega ekki lengur vera börn. Það má ekki pissa úti eða hlaupa berfættur úti á túni eða klifra yfir girðingu. Þetta er orðið allt of ferkantað og það má eiginlega ekki einu sinni hafa skoðun lengur,” segir Númi, og tekur dæmi af syni sínum:
,,Elsti sonur minn kom til mín um daginn og sagði við mig: ,,Pabbi, það er svakalega leiðinlegt í skólanum,” og ég bað hann um að útskýra betur fyrir mér af hverju. ,,Ég má ekki hreyfa mig, ég á að sitja kjurr á sama stað, ég má bara horfa á einn stað og ég má ekki segja neitt.” Það er búið að taka af honum hreyfinguna og tjáninguna og hann á að horfa á sama staðinn langtímum saman. Svo leysum við það þegar börnin eru komin í tóm vandræði með því að gefa þeim pillur við kvíða og athyglisbresti. Ég er ekki að segja að ég sé með einhverja einfalda lausn á að breyta menntakerfinu, en við hljótum að vera sammála um að það sé eitthvað mikið að og að það hljóti að vera hægt að breyta þessu einhvern vegin.”
Viðtalið við Núma og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggvasonar má nálgast inni á solvitryggva.is