Númeraplötur meira en tvöfaldast í verði hjá Samgöngustofu

Númera­plötur munu meiri en en tvö­fald­ast í verði, fara úr 2.665 krón­um í 6.300 hver núm­eraplata og nem­ur hækk­un­in því 136%. Þetta kemur fram í Morgun­blaðinu í dag.

Gjald­­skrár­liðir Sam­­göngu­­stofu hækka al­­mennt um fimm pró­­sent þegar ág­úst­­mánuður geng­ur í garð en þá tek­ur ný verð­skrá stofn­un­ar­inn­ar gildi. Á­stæða þeirr­ar hækk­un­ar er ann­ars veg­ar leið­rétt­ing á skatt­heimt­um sem var áður í gjald­­skrá Sam­­göngu­­stofu 1.500 krón­ur en verður 3.000 krón­ur, hins veg­ar hækk­ar fram­­leiðslu­­gjald úr 1.165 krón­um í 3.300 krón­ur. Þá hækk­ar tíma­­gjald um 14,6%.

Hækk­un­in var til­­kynnt í gær, ein­ung­is þrem­ur dög­um áður en hún tek­ur gildi. Verð­skrá­in var síðast upp­­­færð árið 2020.

Flokk­un á gjald­­skrár­liðum hef­ur verið end­ur­­skoðuð og skipt­ast þeir nú í fjóra flokka: Al­­menna skil­­mála, flug, um­­­ferð og sigl­ing­ar og er það gert til auð­veldunar fyr­ir hag­aðila til að nálg­ast upp­­­lýs­ing­ar sem leit­ast er eft­ir. Síðast var gjald­­skránni breytt í sept­em­ber árið 2020.