Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins, segir í viðskiptaþætti Jóns G. að ekkert verði af hlutafjárútboði Icelandair nema lífeyrissjóðirnir geri sig gildandi í því. Með öðrum orðum; að nú reynir á baklandið í félaginu því lífeyrissjóðirnir eru helstu eigendur félagsins.
„Það er hægt að slá því að föstu að útboðið mun ekki heppnast nema allir helstu lífeyrissjóðir landsins komi að því með mjög myndarlegum hætti; það er engum öðrum fjárfestum fyrir að fara,“ segir Hörður í þættinum.
Efnt verður til hlutafjárútboðsins í september, að öllu óbreyttu, og segir Hörður að viðræður séu þegar hafnar við forráðamenn verðbréfasjóðanna. Síðastliðinn mánudag hófust viðræður við verðbréfasjóðina og á þriðjudag við lífeyrissjóðina.
Útboðið verður í grunninn 20 milljarðar kr. en með 3 milljarða stækkunarmöguleika; eða allt að 23 milljarðar samtals á genginu 1 kr. sem er lægsta leyfilegt gengi, samkvæmt hlutabréfalögum.
Viðtalið við Hörð má sjá í heild sinni hér að neðan en þar er einnig rætt við Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóra viðskipta, á Morgunblaðinu.