Heilbrigðisráðuneytið hefur kynnt til umsagnar áætlun Svandísar Svavarsdóttur um afléttingu innanlandstakmarkana vegna COVID-19. Áætlunin var kynnt í gær og getur hver sem er skrifað umsögn um áætlunina inn á vef samráðsgáttar stjórnvalda.
Um er að ræða afléttingu í fjórum áföngum, allt eftir því hversu hátt hlutfall þjóðarinnar hefur fengið fyrri skammt bóluefnis gegn veirunni.
Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag hefur fyrsta áfanganum þegar verið náð, 25 prósentum, en í honum felast meðal annars 20 manna fjöldatakmarkanir, opnun sundlauga og sviðslista. Í byrjun maí er gert ráð fyrir 35 prósentum og fjöldatakmörkunum allt að 200 manns. Þegar helmingur þjóðarinnar hefur fengið fyrri sprautu, í lok maí, verður fjöldatakmörkun allt að 1.000 manns og nálægðarregla færð niður í 1 metra. Í seinni hluta júní, þegar 75 prósent hafa fengið bólusetningu, verður öllum takmörkunum innanlands aflétt.
Umsagnarfrestur er til 4. maí næstkomandi en til að skila inn umsögn þarf að skrá sig inn á vef samráðsgáttar með Íslykli eða með rafrænni auðkenningu.