„Nú geta kýrnar og rollurnar verið inni í hitanum!“

Pawel Bar­toszek, borgar­full­trúi Við­reisnar, heldur vel upp á hús­dýrin sín í tölvu­leiknum Minecraft. Borgar­full­trúinn deilir ansi skemmti­legri mynd og mynd­bandi á Face­book síðu sinni.

Tölvu­leikurinn Minecraft er einn þekktasti tölvu­leikur okkar tíma. Leikurinn gengur út á að byggja hluti og grafa eftir hinum ýmsu efnum. Ljóst er að borgar­full­trúinn er þar öllum hnútum kunnugur, líkt og hann sýnir fram á í Face­book færslunni sinni.

„Bakstur schmakstur! Ég bjó til þessa hlöðu í Minecraft. Nú geta kýrnar og rollurnar verið inni í hitanum!“

Bakstur schmakstur! Ég bjó til þessa hlöðu í Minecraft. Nú geta kýrnar og rollurnar verið inni í hitanum!

Posted by Pawel Bartoszek on Thursday, 8 April 2021