Nú er mælirinn fullur hjá Lárusi: „Hvað finnst borgarbúum um þetta?“

„Borgarstjóri, nú er mælirinn fullur,“ er yfirskrift greinar sem veitingamaðurinn Lárus Guðmundsson, oft kenndur við Rossopomodoro á Laugavegi, skrifar í Morgunblaðið í dag.

Lárus er ekki mikill stuðningsmaður núverandi meirihluta í borginni eins og oft hefur komið fram en í grein sinni segir hann að nú sé mælirinn fullur.

„Ágæti borgarstjóri. Í apríl á síðasta ári varaði ég þig í grein í Morgunblaðinu við þeirri þróun sem átt hefur sér stað undir þinni stjórn. Síðan þá hafa bara enn fleiri fyrirtæki flúið miðborgina eða hreinlega farið í gjaldþrot. Það hefur meðal annars þær afleiðingar að æ fleiri verða atvinnulausir með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið, svo ekki sé talað um það áfall að missa vinnuna.“

Lárus segir að þeir sem hafa þurft að ganga í gegnum þessar hörmungar bíði og voni innilega að „árásum“ Dags og meirihlutans linni.

„Fólk sem hefur misst lífsviðurværi sitt horfir upp á borgarstjóra sem barmar sér og fellir tár þótt hann sé sennilega einn hæst launaði borgarstjóri Evrópu og með fjölda aðstoðarmanna. Íbúar og gestir miðborgarinnar hafa þurft að horfa upp á gífurlega upptöku bílastæða, á sama tíma hefur mesti óvinur einkabílsins komið því þannig fyrir að hann sjálfur hefur tvö einkastæði fyrir sig og sína og einkabílstjóra. Hvað finnst borgarbúum um þetta?“

Sjálfur er Lárus búsettur í Garðabæ og bendir hann á að hann hafi verið með rekstur á Laugavegi undanfarin 15 ár. Hann segir að staða mála í Garðabæ sé dálítið önnur en hún er í Reykjavík.

„Í Garðabæ höfum við engar göngugötur. Við höfum bæjarstjóra sem er ekki í því að gera torg og skraut fyrir utan heimili sitt á kostnað skattborgara og vinnur markvisst að því að uppræta bílastæði annarra. Við höfum sem betur fer ekki bæjarfulltrúa sem hvetur til þess að fólk „lykli“ bílana okkar eins og einn borgarfulltrúi í Reykjavík gerði. Ekki hefur enn heyrst orð frá borgarstjóra um fordæmingu á þessu annars ógeðfellda framferði borgarfulltrúans.“

Lárus segir að í Garðabæ sé ekki bæjarstjórn sem keyrir „allar framkvæmdir“ langt fram úr kostnaðaráætlunum líkt og algengt er hjá nágrönnunum í Reykjavík.

„Við höfum heldur engan lítinn rándýran bragga sem kostaði sem samsvarar 10-15 íbúðum sem hefði verið gáfulegra að byggja t.d. fyrir fólk í neyð. Svo er enginn svo vitlaus í Garðabæ að kaupa og flytja inn danska njóla eða strá fyrir stórfé. Í Garðabæ höfum við bæjarstjóra sem vinnur vinnuna sína með bæjarbúum og fyrir bæjarbúa og fer vel með peningana okkar, ólíkt borgarstjóra Reykjavíkur.“

Lárus segist að lokum vilja koma því að að hluti af minni viðskiptum í miðbænum undanfarin misseri sé vegna COVID.

„Engir ferðamenn og búið að gera Íslendinga fráhverfa Laugavegi með auknum götulokunum, fækkun bílastæða, allt of háum stöðugjöldum og rugli með akstursstefnu. Kringlan, Smáralind, Skeifan, Ármúli, Síðumúli og Mörkin sem dæmi blómstra þrátt fyrir Covid. Allt blómstrar nema Laugavegurinn, enda er ekki, og hefur aldrei verið, hlustað á rekstraraðila en afgerandi meirihluti rekstraraðila er á móti götulokunum sem hafa skaðað allan rekstur síðastliðin átta ár og valdið miklum fyrirtækjaflótta. Vandi Laugavegarins og alls miðbæjarins er ekki Covid heldur aðgerðir óhæfs borgarstjóra og meirihluta.“