Nú er búið að stela hjóli Bjartmars hjólahvíslara

Bjartmar Leósson, sem gengið hefur undir nafninu Hjólahvíslarinn, leitar nú logandi ljós að hjólinu sínu sem búið er að stela. Bjartmar hefur verið manna duglegastur hér á landi við að hafa upp á stolnum hjólum og hefur hann endurheimt hjól fyrir milljónir króna.

En nú hefur Bjartmar sjálfur orðið fyrir barðinu á hjólaþjófnaði, eins og fram kemur í færslu sem hann birti í Facebook-hópnum Hjóladót tapað, fundið eða stolið.

„Þá er búið að stela mínu hjóli. Úr anddyri hússins sem ég bý í. Gaf U lásinn minn um daginn og hef ekki komist í að kaupa nýjan. En það er líka læst með áföstum lás. Hvað segiði, mynduð þið deila þessu fyrir mig?,“ segir Bjartmar sem var síðast í viðtali í morgun í Morgunútvarpinu á Rás 2 þar sem hann lýsti baráttu sinni gegn reiðhjólaþjófum.