Nú er Bubbi reiður: „Algerlega ólíðandi að ríkisstjórnin skuli opna landið“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er allt annað en sáttur við ríkisstjórnina fyrir að ætla að opna landið fyrir ferðamönnum á nýjan leik.

Eins og greint hefur verið frá verður litakóðunarkerfi tekið upp á landamærunum frá og með 1. maí næstkomandi sem mun gera það að verkum að fólk frá svokölluðum grænum löndum getur ferðast óhindrað til landsins. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt að ákvörðun stjórnvalda hvað þetta varðar sé ekki tekin í samráði við hann.

Nýjar sóttvarnareglur taka svo gildi á morgun en með breytingunum verða meðal annars tekin gild bólusetningarvottorð og vottorð um fyrri COVID-19 sýkingu frá ferðamönnum utan Schengen-svæðisins.

Bubbi gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og telur að verið að stofna lífi og heilsu landsmanna í hættu.

„Það er algerlega ólíðandi að ríkisstjórnin skuli opna landið og setja alla landsmenn í hætt,“ segir hann og bætir við að tónlistarmenn hafi til dæmis verið nánast atvinnulausir í eitt ár og öll menningarstarfsemi nánast legið niðri.

„Pólitík og kosningar eiga ekki að stjórna ákvörðununum ráðherra þegar fólk hér innanlands er loksins að sjá til sólar. Hvað gengur ykkur til?“ spyr Bubbi og merkir Svandísi Svavarsdóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Pál Magnússon meðal annars í færslu sinni. Hvetur Bubbi alla til að láta í sér heyra vegna málsins.

Bubbi lét einnig í sér heyra í gær vegna bóluefnavottorða sem hann sagði ganga kaupum og sölum á netinu fyrir 25 evrur. „Nú verður fjör,“ sagði hann og bætti við að 128 milljón niðurstöður fengjust á Google þegar slegið er inn: COVID certificates for sale.

Það er algerlega ólíðandi að ríkistjórnin skuli opna landið og setja alla landsmenn í hættu Sem og gæði hins daglega...

Posted by Bubbi Morthens on Miðvikudagur, 17. mars 2021