Nú er Baldur orðlaus: „Er nema von að manni blöskri?

Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins, vandar borgaryfirvöldum ekki kveðjurnar. Baldur skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann bendir á að Reykjavíkurborg setji einskonar kvóta á bálfarir af umhverfisástæðum.

„Hversu langt er hægt að ganga í forræðishyggju og yfirgangi í garð landsmanna? Þetta mál snertir nefnilega ekki aðeins íbúa borgarinnar heldur landsmenn alla þar sem um er að ræða einu bálstofu landsins,“ segir Baldur og bætir við að kvótasetningin, ef svo má segja, sé fengin með þeim hætti að skerða svo starfsleyfi bálstofunnar að ekki verði mögulegt að mæta eftirspurn.

„Er nema von að manni blöskri?,“ spyr Baldur sem birtir bókun sem hann lagði fram um málið á dögunum.

,,Fulltrúa Miðflokksins verður ekki oft orða vant. En nú ganga yfirvöld í Reykjavík of langt. Út yfir gröf og dauða. Í orðins fyllstu merkingu. Einu starfandi bálstofu landsins skal nú gert ókleift að framkvæma fleiri en að hámarki 1100 bálfarir á ári, en árið 2020 voru framkvæmdar hartnær 1000 slíkar. Því er ljóst að ekki verður unnt að verða við þessari hinstu ósk margra á komandi misserum. Af umhverfisástæðum að sögn. Hér gengur Reykjavíkurborg of langt. Alltof langt.“