Sandra Ósk Jóhannsdóttir, starfsmaður Dýrfinnu, segir Akureyrarbæ búinn að fara yfri strikið þegar kemur að dýravelferð. Ástæðan er sú að Kisukot á Akureyri neyðist brátt til þess að loka.
Sandra ræðir málið á Twitter síðu sinni. „Kisukot sem hjálpar týndum og heimilislausum kisum í neyð á núna að loka á næstu dögum þar sem bæjaryfirvöld hafa gert þeim erfitt fyrir vegna krafa sem aðrir hafa ekki þurft að uppfylla,“ skrifar Sandra.
Hún segir að Akureyrarbær megi skammast sín. „Það er óásættanlegt að þið séuð að stöðva starfsemi sem er mikil þörf á. Skaffið húsnæði eins og gert er með Kattholt og DÝR því þið eruð ekki að gera ykkur neinn greiða með því að skerða svona nauðsynlega þjónustu. Ömurleg framkoma,“ skrifar Sandra.
„Þetta stangast á við allt sem þið eruð að vinna í varðandi að banna lausagöngu katta. Hvað verður þá um heimilislausu og týndu kettina sem Kisukot bjargar, ef þeir mega ekki vera úti og hafa ekki nein hús að venda? Þetta eru ekki rökrétt næstu skref hjá ykkur og sýnir vanhugsun.“
@akureyrarb innilega skammist ykkar! Það er óásættanlegt að þið séuð að stöðva starfsemi sem er mikil þörf á. Skaffið húsnæði eins og gert er með Kattholt og DÝR því þið eruð ekki að gera ykkur neinn greiða með því að skerða svona nauðsynlega þjónustu. Ömurleg framkoma.
— Sandra Ósk Jóhannsdóttir (@sandra_johanns) March 10, 2022