Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, lýsir yfir miklum áhyggjum af því að starfsemi á borð við þá sem leigubílaþjónustan Uber býður upp á verði leyfð hér á landi.
Þorsteinn vakti athygli á þessu í umræðum um störf þingsins í gær.
„Mig langar að vekja athygli á frétt úr viðskiptablaði Morgunblaðsins, á mbl.is, þann 19. febrúar. Þar er sagt frá hæstaréttardómi í Bretlandi, þar sem leigubílaþjónusta Uber tapaði, og dómsorðið er þannig að bílstjórar sem keyra á vegum leigubílaþjónustunnar séu starfsmenn fyrirtækisins og hafi þar með rétt á lágmarkslaunum, hátíðarkaupi og kaffihléum.“
Þorsteinn benti á að þetta væri niðurstaðan eftir fimm ára baráttu fyrir réttlæti. Þá sé bent á það í greininni að þetta geti markað endalok Uber-þjónustunnar í Bretlandi.
„Það er ef Uber kemst ekki lengur upp með að halda þetta fólk eins og þræla og sleppa við að borga öll launatengd gjöld og yfirvinnu, og hvað þetta heitir, sé grundvöllur leigubílaþjónustu Uber í Bretlandi brostinn.“
Þorsteinn benti á að í þingsal hefðu heyrst raddir um að þetta sé akkúrat kerfið sem við ættum að taka upp hér á landi. „Að við eigum að níðast á fólki og gera það þrælum og borga síðan toll einhverjum feitum Uber-karli í útlöndum sem situr þar á sundlaugarbakka.“
Þorsteinn mótmælir þessu harðlega og segir að um sé að ræða afturhvarf til námavinnslu og annars þrælahalds sem haft var uppi við í Evrópu fyrir 200 til 300 árum.
„En einnig er furðulegt að einmitt núna hefur hæstvirtur samgönguráðherra lagt fram frumvarp, sem er sem betur fer í nefnd og verður það vonandi sem lengst, sem einmitt á að gera það kleift að starfsemi eins og þessi nái fótfestu á Íslandi og ryðji úr vegi fólki sem hefur allt sitt á hreinu, öll öryggisatriði, og borgar sína skatta. Nú á að fara að hleypa ófögnuði eins og þessum lausum á Íslandi.“