Svo virðist vera sem falsfréttasmiðir hafi notað myndefni frá Arnarhóli til að vekja athygli á bólusetningarvottorðum í Frakklandi.
AFP-fréttaveitan heldur úti staðreyndavakt á vef sínum þar sem hægt er að sannreyna ýmislegt sem fram kemur á samfélagsmiðlum. Í færslu sem birtist á síðunni í morgun kemur fram að myndefni sem sýnir fögnuð Íslendinga á Arnarhóli, eftir glæsilegan árangur íslenska karlalandsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi 2016, sé frá fjöldamótmælum í Frakklandi vegna bólusetningarvottorða þar í landi.
Þessar færslur virðast hafa birst víða, til að mynda á Twitter, en eins og flestir Íslendingar ættu að vita er um falsfrétt að ræða.
Reglugerð um framvísun bólusetningarvottorða hefur vissulega verið til umræðu í Frakklandi, en framvísa þarf þeim eða neikvæðu PCR-prófi til að fá aðgang að veitingastöðum, kvikmyndahúsum, leikhúsum eða verslunarmiðstöðvum.
Eins og mörgum er í fersku minni komu þúsundir saman á Arnarhóli þann 4. Júlí 2016 þar sem frábærum árangri landsliðsins var fagnað. Íslenska liðið komst alla leið í 8-liða úrslit og sló meðal annars út stjörnum prýtt lið Englands í keppninni.