Nota Kóróna­veiruna til að blekkja og svíkja Ís­lendinga

„Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu varar fólk sér­stak­lega við svikum sem eru að eiga sér stað um þessar mundir á netinu og í gegnum síma. Al­þjóða­lög­reglan (INTER­POL) og Al­þjóða heil­brigðis­stofnunin (WHO) hafa einnig til­kynnt um svik sem eru að eiga sér stað út um allan heim.“

Þetta kemur fram í til­kynningu frá lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu. Þar kemur einnig fram að ó­dámarnir sem þetta stunda geri það með því að setja upp svika­síður eða hringja í fólk. Reyna þeir að blekkja fólk til að gefa upp upp­lýsingar eða greiða fyrir vörur sem ekki eru til.

„Í tengslum við Co­vid-19 er verið að reyna að svindla á fólki með vörur sem mikil eftir­spurn er eftir. Þetta eru þá vörur eins og öndunar­maskar, hand­spritt o.fl. í þeim dúr.“

Fólk er beðið um að vera á varð­bergi vegna slíkra blekkinga og svika, en nú þegar hefur verið til­kynnt um slíkar blekkingar hér á landi. Þetta á t.d. við um Insta­gram­síðu þar sem fólk var blekkt að Land­læknis­em­bættið væri að hafa sam­band gegnum þá síðu. Þá segir að lokum:

„Rakningar­teymi al­manna­varna er að hafa sam­band við fólk um þessar mundir vegna Co­vid-19 veirunnar, en fólk á að hafa í huga að það er aldrei spurt um lykil­orð, not­enda­nöfn eða greiðslu­upp­lýsingar í þeim sam­tölum.“