Nokkrar kenningar uppi um hvernig Ís­lendingar á Tene fengu „á­kafan upp- og niður­gang“ á jóla­dag

Hangi­kjöts­veisla á Ís­lendinga­barnum Nostalgíu á Tenerife á jóla­dag fór ekki sem skyldi er helmingur gesta veiktist af maga­kveisu rúmum tveimur klukku­stundum eftir her­leg­heitin. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins sem tók viðtal við Herdísi Hrönn Arnardóttur, eiganda staðarins.

Herdís segir að Nostalgía hefur í sex ár boðið Ís­lendingum upp á hangi­kjöt á jóla­dag og annan í jólum og var þetta því þrettánda veislan. „Happa­talan þrettán,“ segir Her­dís í sam­tali við Frétta­blaðið.

Hvað olli maga­kveisunni er hins vegar hið dular­fyllsta mál.

„Við gerðum allt eins og við gerum vana­lega en síðan tveimur tímum eftir matinn byrjaði fólk að veikjast,“ segir Her­dís.

„Ég hélt alveg þangað til í gær að hluti af hangi­kjöts­rúllunum hefði verið skemmdur,“ bætir hún við, „en svo var ekki.“

Það kom kona til okkar sem borðar ekki hangi­kjöt og ég gerði kjúk­ling fyrir hana en hún varð veik. Þá féll það um sjálft sig að þetta hafi verið hangi­kjötið. Svo hélt ég að það hefði verið rauð­kálið en síðan sagði maður við mig að sonur hans hefði veikst og hann borðaði ekki rauð­kálið,“ segir Her­dís.

Eini lík­legi söku­dólgurinn sem er eftir er þá upp­stúfurinn, en Her­dísi finnst það er afar ó­lík­legt. „Upp­stúfurinn er gerður 15 mínútum áður en fólkið mætir. Hann er bara mjólk, smjör og hveiti.“

Her­dís segir að þrettán manna hópur sem heim­sótti barinn í dag hafi einnig verið að glíma við sam­bæri­leg veikindi. „Þau höfðu ekki borðað hjá okkur. Við getum samt ekki hugsað þannig eins og þetta sé ein­hver flensa. Mögu­lega var þetta eitt­hvað hjá mér. Við munum virki­lega passa upp á það,“ segir Her­dís.

Hún af­lýsti boðinu á öðrum í jólum um leið og hún fékk fregnir að veikindum fólks í kjöl­far jóla­dags­boðsins. Spurð um hvernig veikindin lýstu sér segir hún að fólk hafi verið með „á­kafan upp- og niður­gang“.

Maga­kveisan var þó ekki lengi að ganga yfir og voru flestir orðnir á­gæt­lega heilsu­hraustir daginn eftir.

Her­dís borðaði hangi­kjötið á jóla­dag en veiktist ekki. Hún segist engu að síður hafa átt afar slæma daga eftir veikindi gesta sinna. „Ég rek bara bar og kann ekki svona krísu­stjórnun.Við gerðum bara það eina sem við töldum réttast og það var að endur­greiða öllum og við erum að fara í það. Svo mega allir koma og fá drykk hjá okkur í boði hússins. Ég vildi óska þess að ég hefði getað sleppt því að fólk fengi þessar kvalir en við erum bara hugsa hvað við getum gert til að minnka skaðann,“ segir Her­dís að lokum.