Nói Síríus biður Eirík afsökunnar: „Við munum passa okkur betur á þessu í framtíðinni“

Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku við Háskóla Íslands, skoraði um helgina á sælgætisfyrirtækið Nóa Síríus að breyta umbúðunum á svokölluðu Bíó Kroppi.

Ástæðan var sú að bragð sælgætisins var auglýst sem butter & salt, í stað smjör & salt. Hann sagði það gefa til kynna að „íslenska þyki ekki nothæf þegar þarf að vekja athygli, t.d. setja nýja vöru á markað. Þetta grefur meira undan íslenskunni en við áttum okkur á,“

Sjá einnig: Ei­ríkur skammar Nóa Síríus – „Þetta er fyrir­tækinu ekki til sóma“

Nói Siríus hefur nú svarað Eiríki og hann hefur birt svarið. „Ég lofaði að láta ykkur vita ef ég fengi einhver viðbrögð við pósti mínum til Nóa Síríusar um heiti á nýrri vöru fyrirtækisins. Þau eru komin„ skrifar hann og birtir svarið sem er eftirfarandi:

„Við viljum þakka þér fyrir ábendinguna.

Kexið sem við notum í kroppið kemur til okkar merkt „butter&salt“ og okkur fannst það passa vel við vöruna. Þetta var klaufalegt málfar og við biðjumst afsökunar.

Við munum passa okkur betur á þessu í framtíðinni.“

Eiríkur tjáir sig þá um svarið. Hann hrósar Nóa, en segir svarið þó einnig staðfesta hugmynd hans um að ákveðið hugarfar gagnvart íslenskunni grasseri í íslensku samfélagi.

„Það er ástæða til að hrósa fyrirtækinu fyrir þessi viðbrögð – að biðjast afsökunar og lofa að huga að þessu í framtíðinni. En jafnframt er rétt að benda á að skýringin, „okkur fannst það passa vel við vöruna“, staðfestir einmitt það sem ég sagði – að enskt heiti þyki „smart og söluvænlegt og líklegt til að höfða betur til neytenda“. Við þurfum að breyta því hugarfari.“