Níu ára drengurinn fór að hágráta – Ágúst Ólafur: Þetta er ekki í lagi

„Ætla stjórn­völd í al­vörunni að byrja á þessu aftur? Að vísa börnum úr landi sem hafa fest hér rætur í meira en 2 ár er ekki í lagi.“

Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylkingarinnar, um mál egypskrar fjöl­skyldu sem dvalið hefur hér á landi í rúm tvö ár. Fjöl­skyldunni hefur verið neitað um vernd og stendur til að senda hana úr landi á næstu dögum.

Stundin fjallaði um málið í gær en í fréttinni kom fram að yngsta barnið í fjöl­skyldunni hafi komið til Ís­lands þegar það var sex mánaða. Elstu börnin ganga í Háa­leitis­skóla í Reykja­vík og hafa þau að­lagast ís­lensku sam­fé­lagi vel.

„Burt­séð frá öðrum máls­at­vikum þá skiptir máli að hér hafa börnin verið í meira en tvö ár. Lögin gera ráð fyrir að hægt sé að veita dvalar­leyfi í slíkum til­vikum. Börn hafa sjálf­stæðan rétt sam­kvæmt ís­lenskum lögum og sam­kvæmt Barna­sátt­mála Sam­einuðu þjóðunum sem við höfum lög­fest. Þessi börn sem eru tveggja, fimm, níu og tólf ára og eru í ís­lenskum skólum, tala ís­lensku og búa hér, eiga hins vegar bara 8 daga eftir á Ís­landi,“ segir Ágúst Ólafur sem spyr hvort ekki eigi að gera það sem er börnunum fyrir bestu.

Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris, hjálpar­sam­taka fyrir hælis­leit­endur og flótta­fólk á Ís­landi, hefur kynnst fjöl­skyldunni vel. Hún vísar í sam­tal hennar við hinn níu ára gamla Abdalla. „Mig langar að verða flug­maður“ sagði Abdalla, níu ára vinur minn og fór svo að há­gráta. Rewida, 12 ára systir hans og vin­kona mín, sem dreymir um að verða kennari, fór líka að gráta. Á milli grátandi barnanna sátu litlu bræður þeirra, Hamza, 5 ára og Mu­stafa, 2 ára.“

Sema sagði erfitt að lýsa þjáningunni, sorginni og óttanum í augum barnanna þar sem þau sátu á móti henni grátandi. „Ég mun seint gleyma þessari stund og ég er ekki viss um að ég muni fyrir­gefa þeim sem bera á­byrgð á þessari líðan barnanna.“

Sema segir að til standi að senda fjöl­skylduna úr landi þann 16. septem­ber næst­komandi. „Þau verða send til Egypta­lands, þaðan sem þau þurftu að flýja. Þar er faðir þeirra (og í raun þau öll) í lífs­hættu vegna pólitískra of­sókna og of­beldis og hann mun vera hand­tekinn við komuna til landsins. Það sem mun gerast í kjöl­farið er ekki við hæfi að setja á prent að sinni. Það sem það mun þýða fyrir börnin og móður þeirra, ef þau verða ekki hand­tekin líka, er á­fram­haldandi flótti um ó­komna tíð.“

„Mig langar að verða flugmaður“ sagði Abdalla, níu ára vinur minn og fór svo að hágráta. Rewida, 12 ára systir hans og...

Posted by Sema Erla Serdar on Mánudagur, 7. september 2020