Ní­tján smit greindust í gær – Thor Aspelund hefur áhyggjur af stöðunni

Ní­tján kórónu­veiru­smit greindust hér á landi í gær og hafa ekki fleiri smit greinst á einum degi síðan þann 9. Apríl síðast­liðinn þegar 26 smit greindust. Þetta kom fram í máli Thors Aspelund, prófessors í líf­töl­fræði við Há­skóla Ís­lands, í Morgunút­varpinu á Rás 2 í morgun.

Ekki liggur fyrir hversu margir þeirra sem smituðust voru í sótt­kví en í gær var greint frá því að þrettán smit hefðu greinst, en þar af voru tólf ein­staklingar ekki í sótt­kví. Sam­kvæmt þessu virðist far­aldurinn heldur vera að ná sér á strik hér á landi.

Stað­festar tölur verða birtar klukkan 11 og mun þá liggja fyrir hversu margir voru í sótt­kví.

Thor sagði að ef far­aldurinn væri í eðli­legum gangi þá hefði hann búist við færri smitum. Hann hefði verið ró­legur ef átta eða níu smit hefðu greinst en ekki ní­tján eins og í gær. „Þá er eitt­hvað á seyði,“ sagði hann og lýsti á­hyggjum sínum af stöðunni.