Níræð kona í Vestmannaeyjum harmi slegin eftir að hafa verið leikin grátt: „Hún hefur ekki gert neinum neitt“

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir vitnum að eignaspjöllum sem áttu sér stað við Kleifarhraun 1, þegar stungið var á þrjú dekk á bíl sem var lagt þar. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar að kvöldi 10. febrúar eða aðfaranótt 11. febrúar.

Bíllinn er í eigu 93 ára gamallar konu, sem hefur lent í þessu áður.

Dóttir hennar, Kristín Finnbogadóttir, birti Facebook-færslu um málið sem lögreglan deildi.

„Nú langar mig í fyrsta skiptið hér að biðja um aðstoð og reyna á hinn rómaða samtakamátt okkar. Málið er að í annað sinn á nokkrum mánuðum er skorið á dekkin á bílnum hennar mömmu, sem var einmitt 93 ára í gær. Í fyrra skiptið 2 dekk en núna í gærkvöldi eða nótt 3 dekk.“ segir Kristín sem bendir á að hún hafi nýlega keypt fjögur ný heilsársdekk.

„Mér er þetta algjörlega óskiljanlegt og hún auðvitað harmi slegin að einhver hati hana svo mikið. Og ef þessi einstaklingur á eitthvað óuppgert við einhvern í okkar stórfjölskyldu þá bið ég hann að tala við lögregluna og láta hana mömmu í friði. Því eitt veit ég fyrir víst að hún hefur ekki gert neinum neitt.“ bætir hún við.

Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver eða hverjir voru þarna að verki eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 2090.