Niðurstöður könnunar: Hvort segir þú pylsa eða pulsa?

Könnun var gerð nýlega inni á Facebook-hópnum Matartips þar sem áralangt deiluefni var tekið til skoðunar. Spurningin var einföld: Hvort segir þú pylsa eða pulsa?

Yfir 2.200 manns tóku þátt í könnuninni og það má með sanni segja að úrslitin hefðu ekki getað verið mikið tæpari. Um 45,5 prósent þeirra sem svöruðu sögðust frekar segja pulsa en 44,1 prósent segja frekar pylsa.

Pulsuunnendur virðast þannig hafa haft betur en pylsuunnendur; allavega af þessum rúmlega 2.200 sem tóku þátt.

En hvort segir þú?